mánudagur, júní 06, 2005

Stórútgerðir á Akureyri

Akureyri hefur til langs tíma verið sögufræg fyrir margt gott og gjöfult. Hvergi nokkurstaðar á jarðkringlunni er jafn gott veður og þar, þetta er eini flugvöllurinn í heiminum sem leyfir kaffivélum að lenda og taka á loft og þar er drukkið kók úr bauk og svona gæti ég lengi talið. Tengdamóðir mín blessunin keyrir sig vitlausa yfir fjölda umferðaljósa og manndráps traffik í Reykjavik upp í Mjódd til að kaupa KEA rjóma, en norðlenskir kúaspenar hafa yfir einhverjum töframætti að búa sem gerir KEA rjóma fremmri öðrum rjómum. Menn á Akureyri og nágrannasveitum hefur alla tíð verið öðrum fremmri í sjálfsmeðvitund. "Monti" sem svo er kallað af minnimáttar mönnum sunnanlands, sem ekki geta einu sinni sagt Akureyri án þess að missa kraftinn. Að hugsa sér að geta ekki einu sinni haldið út átta stafi. Útkoman? "Agueyri" ha! Akureyri hefur einnig verið laus við alskonar vandamál og spellvirki og var þetta mælt vikulega í dagblaðinu Degi sem gefið var út á Akureyri til fjölda ára og greindi frá óhöppum eða spellvirjum vikunnar og var það þess ætíð getið að um utanbæjarmann var að ræða. "Norðurland ó Norðurland ekkert jafnast á við Norðurland" sungu farfuglar eftir margra daga ferðalag frá veturstöðvum sínum. Alltaf hafa verið stórhugamenn á Akureyri og útgerðasaga bæjarins er löng. ÚA, Súlan, Gránufélagið sem fór á hausinn áður en það varð til eða eitthvað svoleiðis og svo auðvitað KEA. Í seinni tíð hefur nýliðun verið minni en þó eru þeir Samherjafrændur búnir að dútla með einn og einn togara inn og út fjörðinn. Ekki telst ég nú Akureyringur en ég er Suður Þingeyjingur í báðar ættir og það er gott. Langafi minn hét Helgi og alltaf kallaður Helgi Fló. Það voru til nokkuð lengi bátar sem hétu Helgi Flóventsson og var sagt að menn væru á Flóaranum. Það fór því um mig vinalegur fiðringur í dag þegar ég fékk sendar myndir af báti sem fengið hefur nafnið Flóarinn EA. Voru þar á ferðinni móðurbræður mínir sem báðir voru á Flóaranum á sínum tíma. Þeir eru því að feta í fótspor farsælla útgerðamanna á Akureyri. Og farnist þeim vel. Nafnið er flott. Fyrir þá sem vilja vita þá er síðasti Helgi Flóventsson enn þá til og ber nú nafnið Brynjólfur VE og er í Vestmannaeyjum.