Á Flugi fram og aftur í tímabeltum
Ég er þessa stundina í flugi frá Færeyjum til Kastrup þar sem ég mun taka tengiflug til UK. Er þá lokið tveggja vikna sýningartörn. Ekki svo að skilja að mér sé flogið um víðan völl til að sýna mig. Ég er nú ekki svona beinlínis sú týpa eða áhorfilegur. Það er alltaf jafn gaman að koma til Færeyja og í þetta skiptið var veður með besta móti þá daga sem ég stoppaði. Hæglætis blíða og með nettum úrhellum á milli. Og svo eitt rok. Nú eru Bretar í mestu vandræðum því að þeir vita ekkert hvað þeir eiga að kjósa. Blessaðir Tjallarnir, verða alltaf vandræðalegir þegar þarf að taka stórar ákvarðanir. Annars er mér sama hvað verður eða öllu heldur hver verður húsmóðir á Downingstæti 10 í Londonhreppi. Er ekki bara öll vitleysan eins. Þegar hér er komið í pistlinum er ég kominn í aðra flugvél á leið frá Kastrup til Stanstead, frábær þessi lágfargjalda flugfélög, ekkert til, ekki vatn, bara sódavatn, ekki klaki osfrv. Ég komst áðan í vikugamalt DV og get nú ekki annað en velt mér aðeins uppúr því sem þar er að koma fram. Allt voru þetta mikilvægar fyrirsagnir, já já já. Þarna var eitthvert súlkuskott úr Nylon að ná sér í 38 ára gamlan mann. Hinn nýji friðill stúlkunnar var ynntur eftir því hvort hann óttaðist ekki fyrrverandi unnusta stúlkuskotttsins sem mun vera í eymd og grátandi þurrum tárum því hann er félagi í virtum ofbeldisfélagsskap í Reykjavík og slík hörkutól gráta ekki blautum tárum, bara þurrum. Nei ekki hafði hann hugsað sér að óttast hann og þar með var þessari forsíðufrétt lokið. Ja mér hlakkar bara til að flytja til Íslands, ef vandamálin sem eiga heima á forsíðum blaða eru ekki stærri en þetta. Þá er nú bara gott að búa á Íslandi.

<< Home