Snjór, IKEA og Hallbjörn Hjartarson
Í gærkveldi hófst snjókoma hér í Englandi, ekki með neinum látum heldur með þessari venjulegu snjóskyrpu. Þessi grámi sem varla festir setur allt úr skorðum og fólk ferst úr kuldum og flutningaleiðir fólks ganga úr skorðum svo að rútur og flutningabílar liggja afvelta meðfram þjóðvegakerfum landsins. Við drifum okkur af stað í morgun ég og krakkarnir og klæddumst íslenskum snjóklæðnaði og settum stefnuna á garðinn til að fjölga um einn í fjölskyldunni. Þar var klónaður einn snjókarl sem átti held ég eins og hálftíma ævi en þá datt kvikindið um koll og Örvari fannst þar sem þessi ræfill gæti ekki lengur staðið undir sjálfum sér bara best að jafna hann alveg út enda var þarna komið fyrirtaks efni til að hnoða saman í minni kúlur og láta dynja á nágrönunum. Þetta er því svona slabbtíð núna og frekar kalt. Við unnum okkur það einnig til frægðar í gær að fara í Circus hér í bænum en árlega kemur hingað svoleiðis fyrirbæri sem kennir sig við "Uncel Sam American Circus" Þetta er alveg einstakt þar sem öllum vörumerkjum Ameríku er flaggað svo sem fánanum og amerískir trukkar skreyttir með ameriska erninum, glimmeraðir kúrekahattar og alkyns drasl í fánalitunum og besta er kynnirinn; hann er eins og Hallbjörn Hjartarson. Veður fram og aftur blaðrar í míkrafón linnulaust með þvoglulegri hásri röddu svo að einungis skilst lítilræði af því sem hann er að reyna að koma til skila. Sykrað popp og indjánar innanum kúreka að leika listir í tvo tíma. Fínasta afþreying og krakkarnir fíluðu þetta í botn. Kántrýbæjarstemming, Ég sæji þennan fyrir mér á Skagaströnd. Jæja það er komið að því að fara hita upp IKEA kjötbollur. Svona er þetta orðið. Matarborðið, stólarnir, matarstellið hnífpörin og glösin sem við drekkum úr eru úr IKEA svo nú er meira að segja Kjötbollurnar og sultan úr IKEA. Annars var hörmung hér um daginn þegar nýtt IKEA setup var opnað í London og til að trekkja að var sett upp ægilega gott opnunartilboð á einhverjum sófa sem vont er að sitja í. Fjöldi manns tróðst undir og svo gekk þetta svo langt að fólk var stungið á hol því færri fengu sófa en vildu. Þetta er hægt að gera myndrænt" maður stendur í röð við kassan með tilboðssófa undir hendinni og kemur þá ekki einhver og rekur mann á hol hrifsar af mér sófann og tekur stæðið mitt í röðinni.??????????" Mér varð bara hugsað til hennar tengdamúttu sem enn leitar dyrum og dyngjum að rétta sófanum til að prýða stássstofu sína. Aðalatriðið er að það sé gott að leggja sig í honum. Það er gæðamerki á sófum. Jæja sænskar kjötbollur eru að sjóða uppúr svo ég verða að fara og hræra í pottinum með IKEA sleifinni.........

<< Home