Konunglegt bónorð og endurkoma
Það þykir orðið mörgum nóg um hvað ég hef tekið langt frí frá skrifum hér á bloggið. Sem kemur ekki beint til af leti heldur önnum í öðrum hlutum og frekar mikilli fjarveru að heiman í Janúar og Febrúar mánuðum. Já það er ekki eins og maður hafi verið á sólarstönd að sleikja notalegheitin ó nei. Það er ekki þverfótað hér í Englandsskíri fyrir áhyggjum innlendra þessa dagana yfir því að frilla Kalla til tugaára verði nú næsta drottning þeirra. Ég hef hreinlega séð fólk fá hroll þegar það hugsar til þeirra staðreyndar. Að vísu fann einhver sérfróður rykfallinn skjalaskinnsrýnari það út að best væri að kalla hana Her Royal Highness Princess of Contress, sem hljómar eins og hún sé með símalínuþjónustu 109,90 á mínútuna svo ekki sé meira sagt. Innst inni eru Bretar enn sárir yfir skilnaði Kalla og Díönnu og Camilla er og verður álitin hjónadjöfull á meðan hún tórir og jafnvel lengur. Karlanginn hann Karl varð náttúrulega að biðja hennar þar sem hann gat ekki lengur verið svona einmannakarlskröggstýpa enda löngu búinn að slá öll fyrri met frægra manna yfir að vera heima hjá mömmu, hver var sá frægastur er líklega Jesús Kristur sem fór ekki að heiman fyrr en eftir þrítugt skilst mér. Engu að síður hefur fjölmiðlagengið verið í essinu sínu síðastliðna daga með alskyns athugsemdir og aðfinnslur yfir því að þessir eldgömlu unglingar skuli vera að kela þetta einhverstaðar í hinum mörgu skúmaskotum hallarinnar. Einn húmoristinn sagði að hann vildi ekki sjá hana sem drottningu því hann gæti ekki hugsað sér að sleikja frímerkið sem andlit hennar væri á. Það verður örugglega hægt að fylgjast mikið með með þessu á næstu árum, en Kalli getur verið viss um að hann hefur hana Camillu útaf fyrir sig........Það er síðan ætlunin að fara að fjölga pistlum meira og sólin er að hækka á lofti og veður að hlýna svo það lítur út fyrir hlýtt vor. En hvað veit ég svosem um veðurfar frekar en konunglegt kvennafar........

<< Home