Uppgripamánuður
Það kemur kannski spánskt fyrir sjónir að í Bretlandi er Desember mesti uppgripamánuður í sölu á varahlutum í ljósritunarvélar. Þetta ætti náttúrulega að koma breskt fyrir sjónir en kemur samt spánskt fyrir sjónir. Svona er nú íslenskan afar skemmtileg. Og íslenskan verður meira skemmtileg þegar hún er þýdd beint yfir í ensku. Það eru frægar sögurnar af ástkærum landsliðsþjálfara okkar fyrrverandi sem reynt hefur að hasla sér völl í þjálfun á enskri grundu þegar hann linnulaust snaraði íslenskum orðaleppum yfir á ensku. Leikmenn Stoke skildu ekkert í því örlæti hans fyrir einn leikinn er Guðjón var að stappa í þá stálinu með þessari setningu "so guys lets take them to the bakery". Það kom leikmönnum Stoke spánskt fyrir sjónir að ætla bjóða andstæðingunum uppá bakkelsi fyrir leikinn. En meira um ljósritunarvélar ástæða fyrir árstíðabundnum gróða ljósritunarvarahlutaverslanna í desember er að í auknu mæli eru jólapartý haldin á vinnustöðum og eftir nokkra drykki þá virðist neysla áfengis leiða til að pils og buxur verða lausgirtari en ella og tilhneying til að eiga ljósrit af líkamspörtum sem eru almennt ekki í augnsýn dagsdaglega skynseminni yfirsterkari. Ljósritunarvélar eru hinsvegar ekki uppbyggðar til að umbera þá þyngd sem á þær er lögð. Algengasti varahluturinn sem beðið er um í desember er glerið og sleðinn sem rennur fram og aftur.

<< Home