miðvikudagur, mars 14, 2007

Handrukkanir

Ég gladdist yfir því að Jói Ben Sheriff í Reykjanesbæ líður ekkert dóphyski í sínu umdæmi. Og æðir inn á meinta hasshausa og handrukkara með þvílíkum ógnarsvip að þeir stökkva fram af svölum dópgrenjanna. Svona hreinsanir eiga bara að vera jafntíðar og maður fær fréttablaðið inn um lúguna. Ég sat yfir þessari frétt og dáðist af Lukku Láka Keflavíkur og hans mönnum taka Daltonbræður í gegn og enn reikaði hugur minn og ég fór að velta fyrir mér hvernig lífeyrisréttindi eru hjá starfstéttinni handrukkarar. Og þá almennt hjá þessum hópi fólks sem lifir og hrærist í kókaín fylltum BMW bílum. Ég ímynda mér að vistin verið ekki bærileg á Grund eða Hrafnistu með sífellda ógn hangandi yfir mér, að ég sem tannlítill, hárlaust og rýrt gamalmenni verð tekin fyrir af handrukkurum elliheimilanna, neyddur til að taka lýsi í stórum stíl, heypt úr dekkjum hjólastóls míns, brugðið fyrir mig fæti í göngugrindinni eða hvað veit ég svosem hvaða aðferðum þeir beita til að ná af manni ellilífeyrinum. Ég velti fyrir mér hvert sé "ganga"verðið á þvagsýrugigttöflum eða svefntöflum á elliheimilinum og hvort fyrir enda gangsins sé lagt fyrir utan stærsta herbergið, leðurklæddum hjólastól á krómgjörðum og með stærri rafgeymi en aðrir geta fengið í gegnum Tryggingarstofnum...................

föstudagur, mars 09, 2007

Undarlegir hlutir

Það kraumar undir og allt í vitleysu finnst mér einhvern veginn. Klámhundar eru reknir úr landi af feministum sem síðan myndlíkja fermingarbörnum í klámdrottningar, einhver sagði síðan að þegar þekktir feministar sæju fermingarbörn svoleiðis þá gæti sú hin sama ekki borðað banana nema þversum sökum hugsunarhátts. Ég er orðin svo áttaviltur að ég stend við grænmetisbarinn í Bónus, blóðroðna og lít flóttalega í kringum mig áður en ég sting undir brauðin í körfunni gúrkum og bönunum og vona að ég komist útúr búðinni án þess að verða úthrópaður klámhundur. Nú eru fermingar frammundan og ég sé fyrir mér að ekki geti ég: gaukað að fermingarbarni pening, gefið föt, hvað þá svefnpoka osfrv, allt gæti þetta verið túlkað mér í óhag. Ég skil ekkert í þessu landi lengur. Sumargleðin er kominn í framboð með Ómar Ragnarsson í broddi fylkingar, eða má ég kannski ekki nota þessa samlíkingu? Jakop Frímann Magnússon sem Sjávarútvegsráðherra? Þá hafa aldraðir og öryrkjar verið í valdabaráttu í fleiri vikur og flæmt í burtu frambjóðendur og fylgismenn og á endanum hættu þeir sem stóðu eftir við framboðið eftir að hafa verið í framboði í tvær vikur. Ég veit ekki hvað skal halda. Ekki þori ég útúr húsi fyrir svifriki sem ég sé fyrir mér eins og móðuharðindi og sit því heima og blæs út og þá er rætt um útblásturskvóta. Þetta getur ekki orðið lágkúrulegri umræða en nú hefur skotið upp kollinum eða hvað.............?

sunnudagur, febrúar 25, 2007

Innréttingar

Mikið er margt skrýtið og hvernig menn geta leiðst áfram í hégómleikanum, eða þetta segi ég sem er bara kannski svona sár með það sem ég las í Fréttablaðinu um það að Unnur Birna væri orðin andlit íslenska hestsins? Ég var nefnilega um helgina í bússtaðnum fyrir austan fjall og starði inní öll hestagerði að leita að Unni Birnu, náði í staðinn augnsambandi við 37 hross í Árnessýslunni en ekkert þeirra leit út eins og ungfrú heimur fyrir mér. Annars ætlaði ég ekkert að skrifa um þetta heldur að nú erum við hjónin búin að teikna eldhúsinnréttingu í hreiðrið okkar nokkrum sinnum og breyta og bæta við, snúa, færa, hætta við og fresta þó nokkrum sinnum. Mér fannst að þetta væri svona hrikalega erfitt verkefni sem ég væri alveg að ljúka þegar nýr vinkill myndaðist á hugmyndinni og sigurinn hvarf útí buskann. Á nokkrum vikum hefur innréttingin á teikningunni breyst úr hvítri, í hvíta háglans og svo núna síðast í Eikar innréttinguna, skápar hafa breyst úr opnanlegum í útdraganlega og þaðan í skúffur. Möguleikarnir eru óendanlegir og IKEA er tilvalinn heimur til að gera meðalheilbrigðan og greindan karlmann að óstöðugum einstakling með óljósar skoðanir, lítið sjálfsmat, dreymandi skúffufronta og skápahurðar um nætur ýmist háglansandi eða eikarlitaðar. Ég bara get ekki beðið eftir að fara að velja höldur og borðplötu.

miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Sjónvarpsáhorf

Nýtt ár og engin áramótaheit gefin. Það hefur töluvert borið á því að ég heyri að karlmenn hafi verið að tala um sjónvarpsdagskránna að undanförnu og er það ekki í neikvæðum tón sem er óvenjulegt. Ég gat ekki með nokkru móti fengið mig til að muna hvað það væri sem héldi þeim að skjánum svona sterkt. Afhroð landsliðsins var endasleppt eins og venjulega, Guðmundur í Byrginu er ekki til framdráttar fyrir karlþjóðina,formúlan er ekki byrjuð aftur og Eiður er oftast á bekknum. Nei ég gat ekki munað eftir neinu sem ætti að auka áhorf karlmanna á RUV. Ég fór því að leggja betur á mig að finna þetta út. Haldið þið þá ekki að það sé matreiðsluþáttur og það enginn andsskotans kokkur án klæða (því miður)það er kona. Þessi barmmikla lostafulla miðaldra, að því virðist einstæða kona; Ja karlinn hennar er aldrei dreginn inn á sjónarsviði bara börnin tvö, hefur vakið matreiðsluáhuga eða bara áhuga margra karla uppá síðkastið. Það eru líklega aðfarir hennar sem vekja áhuga manna. Hún sleikir puttana,stynur, treður uppí sig og meira segja hefur hún ropað í þætti sem ég sá. Ef þetta er ekki þáttur fyrir karlmenn þá veit ég ekki hvað, mér finnst þetta vera nánast svona verkstæðisdagatal í sjónvarpi. Svo er gott hvernig hún læðist á silkináttfötum í ísskápinn á nóttunni og býr sér til ekta vélstjórasamloku eins og það var kallað á sjónum svo mæjónesið situr eftir í munnvikunum. Áhorf karlmanna hefur líklega ekki verið meira á annað en íþróttir síðan Bryndís var með Stundina okkar. Strákar nýja Bryndís-in okkar heitir Nigela Lawson,

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Spaziba

Ég var að fletta blaðinu í kvöld og rak augasteina mína í þessar þingmannafrasa um nýbúa eða erlent vinnuafl og enn á ný varð maður þess var að það eru að koma kosningar. Af hverju getum við ekki kosið á hverju ári? Eftir að hafa rennt augum yfir kennslulausnir þingflokkana á síðum blaðsins þá furðaði ég mig á því hverskonar misbeiting á rétti þessa fólks sem hér hefur verið holað niður til að vinna þau störf sem við höfum ekki nokkurt geð í að vinna. Afhverju eru blöðin ekki gefin út á þeirra tungumáli? Það er nefnilega við sem höfum ekki geð í að vinna þessa vinnu eða er það ekki? Aðeins aftar var síðan grein um hvernig 3 íslendingum var vikið úr starfi til að geta ráðið útlendinga í störfin þeirra, á hagstæðari kjörum. Jáhá það lá að. Ég hef því tekið mig saman í andlitinu og farið að læra Pólsku á kvöldin til að ekki fattist á mínum vinnustað að ég sé alltof dýr í rekstri Íslendingur sem bara væri hægt að skipta út. Ég treð í fjölskylduna Rvaszy, savapatzy og gruzkyvisky og og segi þeim að ypta öxlum ef einhver yrðir á þau á íslensku. Á efrivör minni er farið að móta fyrir yfirvaraskeggi og börtum á vöngum. Svo svolgrum við vodka á kvöldin klæmumstum á "vorkvöld í moskvuborg" svo að heyrist út á götu. Ég bið ykkur því að vera ekki að taka mig tali sjáið þið mig á götu, því ég er pólskur Spaziba (takk fyrir)

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Fyrir mannkynið........

Loksins loksins.........Þetta málefni, sem nú hefur loksins verið hreyft við af ráðamönnum, hefur brunnið á mér í mörg ár og ég veit að svo er með fleiri. Það er einnig með ólíkindum að Íslenska ríkið hafi ekki verið dregið fyrr fyrir mannréttindadómstóla sökum þess hve sök er augljós í þessum máli og mismunun algjör. En ráðamenn virðast nú ætla að vinna bót á þessari mismunun og er það vel. Ég á ekki von á að þetta munu verða rætt lengi í alþingi enda óþarft að sóa rándýrum tíma frambjóðenda í svo augljóst mál. Málþóf er ekki lausnin í þessu máli heldur skuli allir flokkar leggjast á árar og koma málinu í höfn með samstilltu átaki og ég vil sjá aðgerðir þannig að þetta verið komið til framkvæmda fyrir jól. Svo að á meðan hópnauðgaragengi fara um sveitir og Laugarvegi þá skulum við hrinda hinu mjög svo brýna máli í framkvæmd að skipta úr karlinum á gangbrautarmerkjum og setja konu á þau í staðinn. Upp í huga minn koma hin frægu orð Neil Armstrong " þetta er lítið skref fyrir mig en gríðarlega stórt skref fyrir mannkynið......"