Sálarheill sumra lesanda og flugeldar
Ég ætla að leggja hér nokkrar línur til að létta á sumum lesendum mínum, ég hef fengið uppá síðkastið ábendingar flestar vinsamlegar að ég hafi ekki hrækt á blað orðum í nánast þrjár vikur. Sem er rétt! Það hefur riðið yfir hryðja afmæla að undanförnu þe. hjá afkvæmum mínum og mér sjálfum. Haldið hefur verið upp á þetta með pompi og prakt á ýmsan hátt. Ég fékk á baukinn frá einum ágætum kunningja mínum um daginn þegar ég var að bjóða uppá Roses á afmælisdaginn minn þarna 4 Nóvember sl. Hann voðalega kammó sagði við mig "er virkilega afmæli hjá þér í dag" "já" segi ég eldsnöggt. "Og hvað ertu þá orðinn gamall" segir félaginn. "18 ára" segi ég að bragði. Félaginn verður mjög alvarlegur á svipinn og síðan samúðarfullur áður en hann segir við mig og leggur hendina á öxlina á mér "Lífið hefur greinilega verið þér erfitt!". Ég hef grun um að þeir séu farnir að þekkja mig bölvaðir pjakkarnir og vita orðið hvernig er best að svara mér. Við gerðum sprengjuárás á Healing á Föstudaginn þe. kvöldið þar sem þá var árlegt bonfirenight. Einhverjir okkar (Íslendinganna) höfðu verið búnir að þefa uppi hvar öflugustu flugelda og tertur væri að finna í hreppnum og versluðu sirka eins og kostaði að reka sjoppuna allt árið á einu síðdegi. Þessu sprengiefni var síðan ekið í hjólböruförmum út á opið svæði í miðju nýja hverfinu þegar klukkna var farin að halla í 9 um kvöldið og hafist handa við að koma þessu flestu uppí loftið sumt vildi ekki fara uppúr jörðinni svo það bara sprakk í tætlur þarna innanum okkur, ekki það að við létum það á okkur fá, aðrar fóru stutt og sprungu á þökum nágrannanna. Enginn fórst en það var mál manna að þetta yrði ekki auðveldlega toppað þegar reykinn loks blés í burtu af svæðinu sáum við að við höfðum náð að hrekja inn almenna Breta uppfrá sjónvarpstækju sínum út á götu til að aðgæta hvern fjandinn gengi á og þeir sem mundu eftir heimstyrjöldunum voru eflaust flestir komir niður í kjallara með flashback. Fólk stóð í hópum og góndu meira á þá sem skutu heldur en það sem sprakk í himninum. Jæja þetta gefur þeim eitthvað um að ræða.

<< Home