Ég fór til íslands í þar síðustu viku og var í heila 2 sólarhringa, voða yndislegt. Mamma stóð og bakaði fyrir ættarherinn svo allir féngu nóg. Það er nefnilega þannig að þegar maður er á svona hlaupum þá er erfitt að ná til allra svo við gerðum það í fyrra og aftur í ár að stefna öllum sem vildu heim til foreldra minna á Laugardagsmorgninum áður en ég flygi út aftur. Þangað komu að þessu sinni tengdaforeldrar mínir, amma, föðurbróðir minn, bróðir minn og sambýliskona hans og snæddu saman "torfbæjarmorgunverð". Alvöru norgunmat, ekkert keloggs úr pakka. soðiðbrauð kleinur, flatkökur, heimabakað fransbrauð með þykkri skorpu, hangiálegg ostar, skinku og svo gott rjúkandi kaffi. Bara eins og í veislunni miklu í Kattholti. Ég var á ferðinni með 3 Enskum starfsfélögum mínun og gekk bara nokkuð vel hjá mér sú landkynning sem ég þurfti að ynna af hendi. Ég hef svosem ekkert að segja þannig heldur er lífið svona að smella í jólaundirbúning og jólakrotin ready jólaserían kominn upp utan á húsið. Við erum svo búinn að redda öllu sem þarf í jólasteikina svo nú er eiginlega bara eftir að fara í jólabaðið og greiða hárið. Framundan er svo jóladinnerar hjá Fyrirtækinu og jólasíldarboð hjá sveitungum okkar, og jólamessan sem verður haldinn í Dönsku kirkjunni í Hull.
Bjöggi Adda-Bjarna
Dagbok Islendings um lifið og tilveruna og undarlegar ihuganir eða bara raus

<< Home