PLO foringinn farinn
Blessaður karlinn er nú farinn, Mér finnst ég vera búinn að muna eftir honum alla mína ævi. Þessi litli karl með köflóttu drusluna á höfðinu. Hann var stórmenni í augum þjóðar sinnar en ég man hann betur sem frekar lágvaxinn karl sem sem hefur verið eldgamall síðastliðinn tuttugu og fimm ár. Enda getur það ekki annað en tekið á menn að stjórna grjótkasti landa sinna í 40 ár, hvað skyldu þeir vera búnir að kasta mörgum tonnum af grjóti í Ísræelsmenn í gegnum tíðina. Þessi grjótmokstur hefur yfir okkur hina jarðarbúa dunið í fréttatímum í áratugi. En burt séð frá því hlaut að koma að því að karlinn gæfi upp öndina eins og aðrir leiðtogar og kannski skrýtið að honum skuli ekki löngu hafa verið ráðinn bani sem er nokkuð algengt meðal leiðtoga á þessu svæði. Alveg varð ég undrandi þegar fregnir bárust að því í blöðum hér að þeir væru að fara að taka gröfina hans, ekki það að ljóst var að blessaður karlinn yrði nú ekki til stórræðanna ef hann vaknaði og yfirgnæfandi meiri líkur á að hann kveddi. Heldur var það sem gerði mig svo undrandi að þeir stormuðu af stað með tvær jarðýtur, eina gröfu og tvo vörubíla inn á höfuðstöðvarnar hans til að taka gröfina. Og maðurinn er / var ekki nema liðlega 167 á hæð?? Ég ætla að vona að þegar þessar græjur hafa lokið sér af að þeir muni hvar í holuna þeir settu hann svo steinninn verði svona sirka við höfuðlagið

<< Home