Jólafriður með yður
Hér í landi Engilsaxneskra, eru jólin að skírða inn líkt og hjá öðrum þjóðum. Ég hef áður sagt frá jólakaupæði þeirra sem er þó með minna móti þessi jólin og langt undir væntingum kaupmanna. Þeir standa því í röðun fyrir utan útvarps-og sjónvarpsstöðvar til að koma þeim upplýsingum að að fólk skuli koma sér í bæinn og versla meira. Vinkona okkar, ensk, fór í ASDA í morgun (fyrir þá er ekki vita er ASDA svona Hagkaup Skeifunni sinnum þrír) stundvíslega kl: 07:00 og þá var ekki hægt að fá bílastæði. En ég get með sanni sagt að ég hef komið mínum hlutum á hreint fyrir jólin og er búinn að koma jólakortum í póst. Einhversstaðar þiðnar þorláksmessuskatan í litla þorpinu okkar þar sem um 20 manns munu snæða saman skötu frá Fiskbúð Suðurlands í kvöld. Á eftir verður svo hangikjötið soðið svo þá byrja jólin að ganga í garð í Vindbelg það verður alltaf svo jólalegt þegar hangikjötslyktin leggur undir sig híbýli okkar. Það er staðráðinn ætlun mín að vera ekki með neina tilburði til vinnuástundunar milli Jóla og Nýárs. Heldur verður tánum snúið uppí loft of vömbinni líka svo er bara sjá eftir jólin hvort maður sér tærnar fyrir vömbinni þegar jólahaldi líkur. Jólagestirnir okkar eru komnir í hús og allir kubbar púsluspilsins eru að finna sína staði.

<< Home