Ný brjóst og jólaös
Það getur ýmisleg gerst og líka hér. Auður sendi mig í ASDA á laugardagsmorgunin að kaupa fáein atriði því við vorum búin að bjóða Enskum vinum okkar um kvöldið í villigæs og desert. Þarna barst ég með straumnum í eina þrjá tíma við að reyna ná í körfuna þessum tíu hlutum sem vantaði. það var ekki fyrr en í þriðju tilraun sem straumurinn barst fram hjá mjólkurkælinum og ég gat komið höndum yfir tvo rjóma pela, þá var ég búinn að berast fjórum sinnum í gegnum víndeildina svo oft að ég var kominn með timburmenn. Þá var að stinga sér inní iðuna sem myndi fleyta mér að kassadömu. Ég var úrvinda á þreki og farinn á sál. Mér finnst að það ætti að vera áfallahjálparskýli fyrir utan þessa andskotans stórmarkaði. Það er ljótt að segja þetta en ég kvíð því að fara niður í bæ til að kaupa jólagjafir sem ég get ekki sent Auði eftir, sem eru náttúrulega hennar sjálfrar. Auður var búinn að panta að ég kæmi með henni í morgun með margra vikna fyrirvara að versla jólagjafir fyrir krakkana. Þetta er alveg skelfilegur tími hér og Bretar fara úr límingunni fyrir jólin í þessum verslunarleiðungrunm sínum. Auður kom með þær fréttir handa mér um daginn úr skólanum að ein af bekkjarsystrum hennar tilkynti þeim að hún kæmi ekki í tíma í einar tvær vikur. Ástæðan var sú að það skyldi stækka brjóst hennar. Svo konan sem er einstæð skilaði sér í tíma í kvöld og Auður kom því með framhaldssöguna að segja mér áðan. Sko trendið hér er alment það að brjóststækkanir eru mikilvægari en að eiga fyrir salti í grautinn. Svo ég sé fyrir mér sársoltna heimilsfeður og börn stara hálf hungurmorða á barm húsmóðurinnar og réttlæta þar með tóma diska á borðinu. jæja hvað um það. Bekkjarsystirinn er sem sagt kominn með E-skálar eftir meðhöndlunina. Eitthvað voru aðrar konur að spyrja frekar útí þetta svona eins fólk gerir. Og fengu að vita að aðgerðin var gerð í Tékklandi og ástæðan var að þetta er miklu ódýrara heldur en í ríki Tónýs Blair eða sem nemur 2000 pundum sem sagt gangverð á e-skálum er 2000 pund í Tékklandi en 4000 pund í Englandi. Þetta er svo smyglað í þokkabót. Tollalög segja að þú mátt aðeins koma með inní landið varning að hámarki 200 pund nema að þú getir sannað að hann sé notaður. Alltaf fá þessir tollverðir bestu bitana Það er einnig komið að því að við uppfærum jólalögin okkar með tilliti af svona þáttum og því gætum við sett inní þetta erindi.
Gekk ég yfir sjó og land og hitti fyrir bústna mær. Starði svo og spurið svo hvaðan ertu að koma. Ég er að koma frá Tékklandi Tékklandi Tékklandi Tékklandinu góða
<< Home