sunnudagur, maí 01, 2005

Alþjóðlegar samkomur.

Í síðasta pistli varð ég að venda fingrum í kross og yfirgefa þann anda sem yfir mig var kominn því félagi minn var kominn til að fara með mér út á völl og fljúga til Brussel. Í Brussel var haldin árleg sjávarútvegssýning og er það fjölmenn og fjölþjóðleg samkoma í meira lagi. Það var álitið að um 1000 Íslendingar væru saman komnir í Brussel þessa 4 daga sem herlegheitin standa. Að vanda erum við áberandi ekki einungis fyrir okkar Sann Norræna yfirbragð, heldur erum við svo djöfulli skemmtilegir að allra mati. Við höfum tildæmis öðlast heimsfrægð í Sjávarútvegsgeiranum fyrir að kyrja þjóðernissöngva okkar á hinu fræga torg þeirra Brussubúa "Grand Plas" eða Stóra Torgi. Þetta árið bættum við um betur og mættum með okkur gítarleikara til að hjálpa laglausum að fylgja eftir hinni Skagfirskuhestaréttarstemmingu sem kominn var á höfuðborg reglugerðanna. Þetta mæltist vel fyrir og erlendir gestir og sýnendur voru farnir að hjúfra sig uppað Íslendingum á Stóra Torgi því þar var á vísan að róa í gleði og söng. En þessi sýning tekur enda sem betur fer og maður rétt kemst heim um helgina til að þvo úr töskum og strauja og pakka aftur því nú skal flogið til Færeyja og á aðra sýningu. Frændur vorir Færeyingar halda sína sýningu í þessri viku og verður maður því staddur meðal frænda í fjóra daga. Sólin hefur verið duglega að sýna sig undanfarið og hitinn hefur fylgt henni í því verkefni. Vonandi verður ekki rigning og þoka í Færeyjum því þar er mjög fallegt í góðu veðri.