Hugaður brúgumi
Sögu skal nú segja stutta sem að ég hef nýsskeð frétt, eflaust þekkiði þennan gutta það er alveg rétt. Þannig er að maður nokkur hefur verið að koma sér uppað altarinu í 31 ár með konu sem hann hefur elskað allt sítt líf. Hengilsháttur hans var svo mikill að konan nennti ekki að bíða og fór sjálf upp að altarinu bara með öðrum manni og hrúgaði með honum niður tveimur börnum. Ekki var þetta hjónband ætlað löngum lífdaga og svo fór að þau slitu samvistum eftir að nokkuð áberandi var orðið að eldur var farinn að krauma í glæðum gamla sambandsins með hengilsháttslega manninum, kraumaði sá eldur oft og tíðum fram yfir háttatíma venjulegs fólks, segja hnýsnir. Mömmu hengilsháttslega mannsins fannst þetta ekki góður ráðahagur að láta þennan opna eld loga svona og allra síst þegar fólk var gengið til náða. Svo mamman skipaði hengilsháttslega manninum að hann skyldi finna sér konu við sitt hæfi og stöðu og hætta að hugsa um þessa drós sem blótaði, sturtaði í sig gini og reykti camel eins og kolakynntur togari. Manngarmurinn fór því að ráðum mömmu um sveitir landsins og fann að lokum ósjallaða unglingsstúlku sem var undirleit rjóð og heit og í rökkri kom fram vilja mömmu sinnar sem gaf af sér tvö börn. En svo er það að ekki lifir neisti nema brenni og súrefni hafi og því kulnaði eldurinn í þessum arni en líf færðist í gamla Camel arinninn aftur enda sagt að fýsibelgurinn hafi verið notaður reglulega til að halda loganum góðum og var þetta allt hið vandræðalegasta fyrir alla aðila málsins. Fór svo að að rjóða sveitarstúlkan sem á þessum tíma var rauðeygð af tárum alla daga, gafst upp á að keppa við hin reynda ginsvelg og sleit sambandi sínu við hinn hengilsháttslega mann. Nokkru síðar lést hún. Eftir háttatímasambandið hélt síðan áfram og hengilháttlegamanninum hefur vaxið fiskur um hrygg og ákvað fyrir nokkru að fara niður á hnéin og biðja viðhaldsins. Mamma hans var eitthvað stúrin yfir þessu öllu saman og ákvað að hún ætlaði ekki að koma til þessarar víxluathafnar sem verður að halda í borgardómi í Windsorhreppi. Mömmustrákurinn er nú að verða sextugur og hefur loksins skorið upp herör gegn vilja mömmu sinnar og ákveiðið að eiga æskuástina sína. Konunglegir rýnarar og fræðamenn leita endalaust að leiðum í skinnbókum breska lögþingsins til að blessa eða forbjóða ráðahaginn og einnig að meta hvort Kalli megi eða geti orðið kóngur klár.

<< Home