mánudagur, maí 23, 2005

Kveðjupartý

Allt líður þetta og hver helgin á fætur annarri er pökkuð af hlutum sem þarf að gera. Um fyrri helgi var haldið mikið kveðjupartý í gaðinumhjá okkur í Vindbelg. Komu 53 gestir til þessa teitis sem hófst kl: 5 síðdegis og lauk kl: 4 árdegis. Alvöru partý með grillmat gítarspili og miklu af gargolíu. Veðrið var skaplegt en en frekar svalt. Ég fékk akstursdeildin hérna hjá mér til að smíða tunnugrill úr 200 lítar olíutunnu og svo grillaði ég ofaní mannskapinn á þessu apparati fyrir fólkið. Þetta var "fínar græjur" eins og vinir mínir í Færeyjum segja. Um morgunin eftir þegar ég var búinn ða ganga frá öllu og krakkarnir voru komnir til baka, sagði Örvar þar sem hann stóð og horfði yfir garðinn " voru nashyrningar hérna í nótt" Ég leit undrandi á barnið og spurði "því heldurðu það vinur"? Það er allt grasið svo traðkað hérna sagði stubbur þá. Og víst gat það verið að við höfum verið eins og nashyrningar. Fyrir partýið gekk ég í hús nágranna okkar til að aðvara þær, en flestar í kringum okkur eru ekkjur. Ein þeirra sagði "en gaman ætlið þið að syngja og spila á gítara", "Já eflaust verður kyrjað eitt og eitt þjóðernislag ef ég þekki okkur rétt", svo sú gamla sagði "þá ætla ég að opna glugga svo ég geti heyrt það er svo gaman þegar þið farið að syngja og spila". Svo greinilega eru partýin okkar vel metin hjá sumum. Þetta er partý sem verður í minnum haft fyrir prúðmennsku og skemmtilegheit. Gott að enda svoleiðis.