fimmtudagur, maí 26, 2005

Júróvisionzzzzzzzzzzzz

Mikið fannst mér Evrovision keppnin vera "DULL" þetta árið. Og ekki get ég verið sammála því að framlag Íslands hafi verið frábært. Undankeppnin var þvílíkur skrípaleikur enda fóru þar fyrir hópi Austantjalds þjóðir sem hafa verið leiðandi í allskyns fjölleikahúsatriðum frekar en að vera með áheyrilega tónlist. Allir muna eftir Sircus Billy Smart sem var mannaður Austantjaldsfjöllistafólki og það góðu fjöllistafólki. Mér fannst Selma komast frá söngum en búningar og dansatriði fannst mér ekkert tilkomumikil og ekki passa við lagið. Síðan hreinlega gafst ég upp á að horfa á þetta endemis skattborgargreidda rusl og skipti yfir og horfði á Footballers Wives sem er verulega verra en ekkert. Á laugardeginum var síðan aðalkeppnin sem er engin aðalkeppni þegar Ísland er ekki með. Ég var svo heppinn að á öðru lagi ákvað Ragna að fara að sofa svo ég fór með henni inn og við sofnuðum bæði. Reynt var að koma í mig lífi en einhvern veginn hafði heili minn enga löngun til að slíta sig frá draumadísinni sem sveif um í honum og fara að horfa á þetta "freek show" sem var þarna á ferðinni. Á Sunnudaginn var síðan Sjómannadagsmessan okkar árlega og presturinn blessaður er svo gríðarlega duglegur að draga hingað með sér allskyns lið sem er að stúdera í London borginni. Mér finnst einhvern veginn að hann komi með þessa eilífðarlistamannastúdenta hingað til að réttlæta að þeir séu búnir að vera heila eilífð að nema eitthvað gagnlegt og þurfi að sýna þá fyrir okkur. Eins og mér sé ekki sama, þetta eru þeirra námslán. Í leiðinni var fermdur hálfur íslendingur og hálfur Skoti að nafi John Gunnlaugur. Og svo var kýlt í sig Íslensku bakkelsi af öllum gerðum. Veðrið er aðeins að byrja að líta út eins og sumar núna en asskoti er fæðing þessa sumars búinn að vera erfið.