Svo er komið að við erum kominn undir eigið þak og Íslandsbanka,ekki varð það eins snöggt og ætlað var þar sem breytingar tóku á sig hlykk og verkið var stórt. Ég get þó sagt að við erum ánægð með breytinguna á íbúðinni og tíminn þess virði að hafa verið aðeins lengri en áætlað var. Við erum sem sagt orðnir Grafarvogungar. Allir hlutir eru að skríða í sína farvegi og áskriftir hlaðast á boðgreiðslur sem vera ber. Ekkert lengur útí hönd og enginn hringir dyrabjöllum á kvöldin að rukka fyrir Moggann. Nei það er liðin tíð. Hormónaflæði mitt er og hefur verið skakkt frá örófi sérstaklega þegar kemur að hárvexti og ber ég þetta höfuðprýði þykkt og stíft með ótal sveipum sem hryllt hefur hárskera þessa lands og annarra lengi. Sökum hins óstyrláta hárvaxtar hef ég þurft að fara í klippingu á 12 til 15 daga fresti til að skjóta ekki fólki skelk í bringu. Verð á klippingum hefur því verið mér afar huglægt og ég hef sterkar skoðanir á því hvað hár þessi persónubundni skattur á að vera. Enda eyði ég helmingi á við fjölskyldubílinn þegar reiknað er á þann hátt. Ég hafði ekki mikinn tíma fyrstu vikurnar eftir að við komum til landsins í að fara í klippingu og í tvígang hrökklaðist ég undann verðtöflum klippistofa bæjarins. Var Ég varð því aðeins hressari þegar ég loksins fann klippara sem var innian minna verðhugmynda. Honum leyfði ég fúslega að fara um höfuð mitt flugbeittum skærum og rakhnífum. Líkað mér bara vel árangurinn og er því búinn að finna mér minn einkahárskera sem verðleggur sig ekki umfram væntingar. Nú er bara finna útúr því hvernig æég get réttlætt akstruinn austur á Selfoss til að fara í klippinguna.!
Bjöggi Adda-Bjarna
Dagbok Islendings um lifið og tilveruna og undarlegar ihuganir eða bara raus

<< Home