mánudagur, júní 27, 2005

Hringvegavitleysa

Mörg eru æðin sem herja á samlanda okkar og við eigum einig auðveldara með að sjá þessi æði þegar við komum til baka eftir útlegð síðustu ára. Ég var að undra mig á þessu æði allra að arka umhverfis Ísland í ýmsum tilgangi. Það hefur oft verið hættulegt að hafa mikla umferð um hringveginn sökum vanbúnaðar hans sérstaklega þegar kemur að einbreiðum brúm og búfénaði sem hefur einstakan hæfileika til að vera á og utan í vegarslóðum Íslands frá því að þeir mynduðust. Það vakti því athygli mína þegar hver hópurinn á fætur og hjólum öðrum hefur lagt af stað til að arka hringveginn öðrum til framfæris, haltir leiða blinda og þeir sem eru hvorugt annað hvort hjóla þetta eða róa svo er vetnis knúnir japanir inn á milli. Allt er þetta góðra gjalda vert og ekkert hef ég út á það að setja að menn styrki góð málefni. Það sem ég hef undrast er,/ eða ekki sýnast mér allir þessir aðilar vera í líkamlegu formi til að takast á við þetta verkefni. Ég er viss um að mörg Heiðstæðisholtin og Fljótsheiðarnar eystir og vestri muni vefjast fyrir keðjum og skósólum þátttakenda. Þó finnst mér að göngufólkið og hjólakapparnir taki ræðaranum fram í skynsemi. Kannski erum við að horfa þó uppá að ræðarinn verði hetjann okkar þegar allt kemur til alls því það getur varla verið einfalt mál að róa kringum landið á frauðplastbút. En öll þessi traffik bætist ofan á venjulega puttalinga túrista og hjólafólk sem á hverju sumri er sandblásið af bílaumferð á hringveginum. Þið megið kalla mig letingja en ef ég ætti að ferðast um landið þá yrði það ekki á þennan máta. Nú megið þið hætta að kalla mig letingja. Maður fer nú ekki hringinn nema maður sé í fríi er það ekki?.

mánudagur, júní 13, 2005

Heilbrigðisvandamál

Alltaf leggst mönnum eitthvað til og eins er það í dag. Í útvarpinu á leið í vinnu í dag var greint frá því vaxandi vandamáli innan heilbrigðisgeirans að drykkjuskapur og lyfjaneysla lækna sé orðið það mikið vandamál að grípa þurfi til aðgerða. Lætur að getum að um 15% lækna sé með einhverskonar vandamál á þessu sviði í Bretlandi. Eru þessar staðreyndir byggðar á einhverri úttekt. Sama úttekt greindi frá því að um 700 lækanar hafi lent í útistöðum við sjúklinga sína á síðasta ári og er þar tekið fram að þær útistöður hafi verið í vinnunni en ekki á hverfispöbbnum. Einnig hefur verið bennt á að þetta sé vandamál sem rekja megi til upplýsingaskorts og ónægra verklagslýsinga. Einungis einn spítali í Bretlandi getur þess sérstaklega í handbókum sínum til starfandi lækna þar að neysla áfengis á vöktum sé óæskileg. Mun það vera Spítalinn í Newcastle. Einnig telja yfirvöld að það verði að gefa út samræmdar reglur um neyslu áfengis samskonar og gert er hjá Flugfélögum fyrir flugmenn. Ég hef því pantað mér tíma hjá alsgáðum lækni á morgun til að láta gera að sárum mínum sem ég hlaut eftir vitjun heimilslæknis míns. Nei ég er bara svona að gera þetta myndrænt fyrir mig svo ég skilji þetta. Og það verður því ekki þverfótað á afvötnunarstöðvum Bretlands fyrir læknum í misundarlegu ástandi.

mánudagur, júní 06, 2005

Stórútgerðir á Akureyri

Akureyri hefur til langs tíma verið sögufræg fyrir margt gott og gjöfult. Hvergi nokkurstaðar á jarðkringlunni er jafn gott veður og þar, þetta er eini flugvöllurinn í heiminum sem leyfir kaffivélum að lenda og taka á loft og þar er drukkið kók úr bauk og svona gæti ég lengi talið. Tengdamóðir mín blessunin keyrir sig vitlausa yfir fjölda umferðaljósa og manndráps traffik í Reykjavik upp í Mjódd til að kaupa KEA rjóma, en norðlenskir kúaspenar hafa yfir einhverjum töframætti að búa sem gerir KEA rjóma fremmri öðrum rjómum. Menn á Akureyri og nágrannasveitum hefur alla tíð verið öðrum fremmri í sjálfsmeðvitund. "Monti" sem svo er kallað af minnimáttar mönnum sunnanlands, sem ekki geta einu sinni sagt Akureyri án þess að missa kraftinn. Að hugsa sér að geta ekki einu sinni haldið út átta stafi. Útkoman? "Agueyri" ha! Akureyri hefur einnig verið laus við alskonar vandamál og spellvirki og var þetta mælt vikulega í dagblaðinu Degi sem gefið var út á Akureyri til fjölda ára og greindi frá óhöppum eða spellvirjum vikunnar og var það þess ætíð getið að um utanbæjarmann var að ræða. "Norðurland ó Norðurland ekkert jafnast á við Norðurland" sungu farfuglar eftir margra daga ferðalag frá veturstöðvum sínum. Alltaf hafa verið stórhugamenn á Akureyri og útgerðasaga bæjarins er löng. ÚA, Súlan, Gránufélagið sem fór á hausinn áður en það varð til eða eitthvað svoleiðis og svo auðvitað KEA. Í seinni tíð hefur nýliðun verið minni en þó eru þeir Samherjafrændur búnir að dútla með einn og einn togara inn og út fjörðinn. Ekki telst ég nú Akureyringur en ég er Suður Þingeyjingur í báðar ættir og það er gott. Langafi minn hét Helgi og alltaf kallaður Helgi Fló. Það voru til nokkuð lengi bátar sem hétu Helgi Flóventsson og var sagt að menn væru á Flóaranum. Það fór því um mig vinalegur fiðringur í dag þegar ég fékk sendar myndir af báti sem fengið hefur nafnið Flóarinn EA. Voru þar á ferðinni móðurbræður mínir sem báðir voru á Flóaranum á sínum tíma. Þeir eru því að feta í fótspor farsælla útgerðamanna á Akureyri. Og farnist þeim vel. Nafnið er flott. Fyrir þá sem vilja vita þá er síðasti Helgi Flóventsson enn þá til og ber nú nafnið Brynjólfur VE og er í Vestmannaeyjum.