Ísland lögsækjum það heim
Ísland er land tækifæranna á fjögurra ára fresti. Ekkert mál að koma hlutum í gegn á fjögurra ára fresti og á fjögurra ára fresti kemur fólk fram og ljóstrar því upp hversu miklir hálfvitar og liðleskjur þeir séu sem hafa farið með stjórnina síðastliðin fjögur ár. Og þetta fólk hefur flest allt verið sitjandi á þingsætum síðastliðinn 4 ár einnig. Afsakið þetta er ekki alveg rétt hjá mér, þeir eru alltaf hljóðir allir sem einn og sammála, þegar nefndir skipaðar af þeim sjálfum ályktar og skipar svo fyrir að launin þeirra skuli hækka svo og svo mikið eins og um daginn. Ekki eitt andmæli hef ég heyrt um það. Ég hef nú ekki bloggað síðan í júní og þykir mörgum nóg um hversu langt sumarfrí ég hef tekið mér. Ég hef má segja verið hálf orðlaus síðan í sumar þegar við "sóttum Ísland heim" familíjan. Við fórum um verslunarmannahelgina í vagninn okkar norður í land á mínar heimaslóðir, svona til að tengja afkomendur mína við þúfurnar sem ég hrasaði um í æsku. Þarna var maður svo rændur í bókstaflegri merkingu þegar manni var gert að greiða 6000 kr fyrir 4 hamborgara og kók, mistökin mín voru náttúrulega að athuga ekki hvað þeir kostuðu þegar ég pantaði en maður gerir sér svona óljósa grein fyrir að allt yfir 4000 hefði verið farið að hringja rauðum svívirðingar bjöllum. Ég talaði ekki meira þennann daginn segir konan mín og ég hef haldið aftur af mér síðan um Verslunarmannahelgina með að blogga um þetta. En ég nota núna áfallahjálpsaðferðina og tjái mig því um þetta nú til að létta þessu af mér og vona að ég fái sálarró. Ég hugsa til þess þegar afi minn og amma bjuggu á þessum sama bæ og hefðu rukkað gesti og gangandi fyrir jafnómerkilegan gjörning og þennan þá væru þau forrík.....Þetta slagorð ferðaþjónustunar er því með stórkostlegri prentvillu því þarna á að sjálfsögðu að standa, "Ísland lögsækjum það heim".

<< Home