Stafrófskekkur
Í starfi mínu þarf ég að þvælast mikið og víða. Bæði innanlands og erlendis. Þetta er oftast nær mjög gaman og fróðlegt en sumt getur vakið manni leiða. Sérstaklega er það bið á flugvöllum sem ég algjörlega þoli bara ekki. Það eru hrikalega ómannvistarvænir staðir. Óþægilegir og illa hannaðir fyrir það hlutverk sem þeir lenda oftast í þe. seinkanir. Hitt er að vera einn að borða á "veitingarstöðum" úti á landi í miðri viku. Fyrir stuttu var ég á ónefndum stað yfir nótt og fór því að snæða á veitingastað svona eins og maður gerir. Ljóst var strax að óvanur var þjóninn. Ég fæ að vita að súpa dagsins sé grænmetissúpa. Laggó það er fínt hugsa ég og af því að það var mánudagur þá fór maður ekki í neitt fínna en snitsel. Fisk dagsins lagði ég ekki í því að ég vissi að brælur höfðu staðið í nokkra daga og því fiskur dagsins langt frá því að vera fiskur dagsins. Þjónninn, myndarstúlka en óörugg um flesta þætti þjónshlutverksins, örugglega að klára 10unda bekkinn, hvarf inní eldhús og ég heyri að hún ræsir kokkinn úr kvöldfréttunum sem hljómuðu úr sjónvarpstæki inní búrinu. Glamur í diskum og svo kunnuglegt hljóð þegar hurð á örbylgjuofni er opnuð,klang lokuð og bíb bíb bíb sem sagt þrjár mínútur,wwwwwrrrrrriiiiiirrrrrrrrrr......rrrrr og bíng. "Gjörðu svo vel" segir ungþjónninn. Fyrir framan mig var kominn diskur sem var heitari en súpan sem í homum var. Það hefði tekið MAGGI súpuframleiðendan ekki nema sekúndubrot að verða brjálaður yfir þeirri sjón sem flaut í súpudiskinum. Þetta var stafasúpa en greinilegt er að örbylgjuofninn hefur aldeilis ekki kunnað að raða stafrófinu í rétta röð. Stafirnir voru fastir í þremur aðskildum kögglum í diskinum. Súpan fór niður, ég er lítið fyrir að röfla,ljúfmenni, allir eiga séns á einum mistökum. Snitselið var afþýtt í sama röntgentækinu og súpan var hituð og síðan djúpsteikt í feiti dagsins og þá var ég búinn að græða, því af því var nú komið bragð af fiski dagsins. Með þessu átti að vera köld tartarsósa en sökum skorts var boðið uppá koktelsósu eða tómatsósu. Svo koktelsósa var það heillin. Þetta kvöld snæddi ég einn og eina réttinn sem framreiddur var á þessum veitingastað þetta kvöld. Það er erfiður bransi að vera vert úti á landi á mánudagskvöldum að vetri til.

<< Home