Aldarafmæli
Í dag hefði orðið 100 ára Þórður frá Dagverðará. Mikill merkiskarl og sérstakur. Ég varð þeirrar upplifunar aðnjótandi að umgangast hann í eina viku árið 1994 og hvar annarsstaðar en á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Ástæða þessa að karli var boðið að vera þar í viku var að Ferðaþjónusta sem ég vann hjá þetta sumar gekkst fyrir svona Arnarstapadögum ekki man ég hvað þetta var nefnt nákvæmlega en eitthvað tengdist nafnið kyngimögnuðum kröftum sem leynast og næra þá er undir Jökli búa. Þórð heitinn fluttum við semsagt inn frá Akureyri en hann var þá orðin vistmaður á dvalarheimili þar. Hans hlutverk var að vera með sagnakvöld á veitingahúsinu 3 kvöld að mig minnir. Það var troðið útúr dyrum öll kvöldin og karl fór á kostum og sögurnar urðu magnaðri með hverju kvöldinu. Milli sagnakvölda var hann á vappi um svæðið og tók menn í einkasögutíma og kenndi mér meðal annars "fræðin" í kvennamálum og þótti honum ekkert tilkoma um afrek mín á þeim sviðum, enda sýndist mér á sögum hans að ég myndi aldrei ná á þann stall sem hann var. Án gríns fór þarna fróður maður um náttúru og sögur og gríðarlega skemmtilegur að hlusta á. Einhvern tímann var gefin út bók um hann eða eftir hann og hvet ég fólk til að lesa þá bók sér til skemmtunnar.

<< Home