sunnudagur, október 17, 2004

Helgarpistillinn

Við vorum að leysa heimsmálin ég og Örvar sonur minn um daginn. Við vorum að koma frá einhversstaðar þegar hann spyr allt í einu eftir drjúga þögn. Þessar þagnir hans enda oft á djúpum spurningum um eitthvað sem hann hefur verið að velta fyrir sér. " Pabbi hvað verð ég gamall þegar við flytjum til Íslands" Það er nú ekki gott að tímasetja svona hluti langt fram í tímann svo ég segi svona til að sleppa ódýrt frá svarinu; " Þú verður svona 6-7 ára" "Nei" sagði hann aðbragði "Ég verð 6 ára núna og það gildir í hring" Sem þýðir að maður verður 6 ára í heilt ár því á ensku er sagt whole year around. "Ok" segi ég alveg sigraður með slíkri staðreynd. Þá segir hann " þegar ég verð 6 ára get ég flutt aftur til Elliða í Vestmannaeyjum" "Það er nú ekki víst að við getum flutt til Vestmannaeyja þá" útskýri ég "Afhverju ekki?" er ég spurður úr aftursætinu " Nú það fer eftir því hvar við fáum vinnu" "Kannski verðum við að búa í Reykjavik" segi ég. "Ooohooo! það er ekki skemmtilegt ég vil eiga heima í Vestmannaeyjum" segir kauði. Svo til að gera þarna stutta og snaggaralega skoðanakönnun hjá drengstaulanum segi ég "Ef þú mættir velja um hvort þú vildir heldur búa í Grimsby eða Reykjavik hvort vildur þú?" Hann var nú ekki lengi að skera úr um það "I don´t care" og það voru ekki höfð fleiri orð um það. Annars er það helst að frétta að það hefur kólnað mikið hér á Englandi og er jafnvel spáð frosti og kannski éljum í næstu viku. Fólk er að komast í þann gírinn að gera jólainnkaupin þeir leggja gífurlegan tíma í svokölluð christmas shopping. jú það fækkaði um einn í fjölskyldunni á Fimmtudaginn þegar líkamsleifar ráðherra Volvosins voru seldar til Immingham, sko sálin var farinn svo það var bara boddýið sem dregið var á braut af tveimur Bretum sem verða örugglega búnir að koma honum í gang innan ekki langs tíma.

laugardagur, október 16, 2004

Samvistarafmæli

í gær var merkisdagur þegar við hjónin áttum 9 ára samvistarafmæli. Þetta er þannig tímatal að á þessum degi hófst samvist okkar, sambúðin sjálf hófst nokkrum mánuðum seinna. Ég væri örugglega ekki að færa þetta í orð ef ég væri ekki minntur árlega á þessa staðreynd. Sem sagt fyrir níu árum var sagt við mig "þú ferð ekkert án þess að ég komi með" Og enn þann dag í dag eru þessi skilaboð í fullu gildi. Ég fór til Vestmannaeyja og Auður kom með. Ég fór til Englands og Auður og börnin komu með. Við höfum átt stórskemmtilega tíma saman. Nóg um það. Ég stundum velti því fyrir mér afhverju konur er svona góðar í að muna tímatöl og dagsetningar. Það virðist vera einhver brennandi áhugi hjá þeim að muna uppá hár hvað hver einstaklingur eldist mikið, þær hafa mjög sterka öldrunarrýni!. Eins og það sé eitthvað sem fólk vill rosalega vera minnt á. Móðir mín blessunin hefur gert þetta í gegnum tíðina að hringja í okkur til að minna á að hinir og þessir misnátengdir manni eigi nú afmæli og gott væri nú að hringja í þá í tilefni þess. Ég man að hún gerði þetta líka við bræður sína. Ég er ekkert að kvarta yfir því að hafa svona sjálfvirka áminningarþjónustu. Ég held að hún sé bara nýhætt að skrifa í jólakortin "Kveðja Addi, Jonna og strákarnir. Það er allveg ljóst að við karlpeningurinn höfum að stórum hluta þörf fyrir svona ítarþjónustu. En ftjótt skipast veður í lofti og svo var einnig í sumar. Þá átti hún merkisafmæli og þá var sagan önnur helst mátti ekki gera neitt í málinu og þetta var allveg hræðilegt. Talan ógurlega. Leitaði allra leiða til fá sér hulduhöfuð svo hún gæti farið hulduhöfði. Bræður hennar hinsvegar náðu sér á strik í staðinn og mundu vel að hún ætti afmæli og ortu til hennar lymrur og vísnabrot til áminningar. Kannski eldist þessi öldrunaráhugi af manni...........hver veit.....eða man....

fimmtudagur, október 07, 2004

Morðgáta

Við vorum boðuð í virðulegt boð um síðustu helgi og þar fengum við ákveðin hlutverk sem við áttum að leika og leysa. Hér eru til spil sem eru óleystar morðgátur og við fórum á búningaleigu og dressuðum okkur upp í herlegheitin. Voðlega gaman og myndir af þessu má sjá á myndalbúmi Auðar á netinu ég veit bara ekki slóðina svo það er ekki mikið gagn af því að ég segi frá því hér. Ég sé þetta fyrir mér íslenskum markaði innan skamms. Ég ætlaði hinsvegar að fara í aðra sálma hér í þessum pistli og það er hvað Bretland er mikið rusl land. Á þessu ári fellur til í UK 25 milljónir tonna af heimilssorpi og er það 3% aukning frá því í fyrra. Blessaðir samlandar okkar hér þe. Bretar eru ekki mikið fyir endurvinnslur og landvernd og svoleiðis þætti, nema þegar kemur að því að veiða Refi. Það er algjörlega sauðasynd, Fyrirgefið en þetta átti náttúrulega að vera dauðasynd. En áfram með ruslstaðreyndir. Þeir endurvinna um það bil 14,5% af heimilissorpi. Svo nú hafa þeir boðað herferð fyrir endurvinnslu. Og það skal gert með heilaþvotti eins og: hvert heimili leggur til yfir tonn af rusli árlega, Árlega hefur hver ruslatunna innihaldið nóga ónýtta orku fyrir; 500 baðkör, 3500 sturtur og 5000 keyrslustundir fyrir sjónvarp. Bretar væru ekki nema tvo tíma að fylla ALbert Hall með rusl framleiðslu sinni og sjöundu hverja viku hefur hver maður í UK hent frá sér þyngd sinni í rusli, og toppurinn yfir i-ið er að ef þú endurvinnur eina plastflösku þá sparar nógu mikið til að keyra eina 60watta ljósaperu í sex tíma. og þar hafið þið það. Þetta eru ekki ný vísindi fyrir okkur nýbúnana hér frá Íslandi því við höfum oft undrað okkur á því hvað umbúða sóun er gríðarleg í UK, svo við tökum herferð Breta fagnandi og verðum í rusli með þeim. Hér er mynda slóðin en ég veit ekki hvort þetta virkar, http://pg.photos.yahoo.com/ph/audurbara/album?.dir=8769&.src=ph&store=&prodid=&.done=http%3a//pg.photos.yahoo.com/ph//my_photos