laugardagur, júlí 24, 2004

Við höfum nú gesti hjá okkur frá Íslandi, þar sem bróðir minn og fjölskylda lenti hér á Miðvikudaginn og verða hjá okkur í tæpa viku.  Ég staulaðist heim eftir ferð til Færeyja á Fimmtudagskvöldið.  Þar hafði ég verið eins og áður sagði í nokkra daga í dásamlegu veðri og naut þessa að drekka 20 kaffibolla á  dag!!!.  Því hvar sem maður kom var boðið uppá kaffi, svart.  Jæja þeir eru yndislegir blessaðir og það var rosalega fallegt þarna bara eins og á Austfirðum og ekki er stressinu fyrir að fara hjá þeim.  Þeir voru kannski líka extra afslappaðir því nú var að byrja hjá þeim Olavsvoka.  Og þá er ekki hægt að ná í nokkurn mann í heila viku.  Ég verð nú að segja að dugnaður er í þessu fólki sem telur 45000 mans og heldur úti fullbúnu þjóðfélagi á þessum harðbýlu eyjum.  Það styttist í fríið hjá okkur og áætlað er að fara til Íslands 4 Ágúst og til baka aftur 30 ágúst þó verða þarna nokkrir dagar í vinnu en aðalatriðið er að við náum Flateyjarviku, ættarmóti, gæsaveiði, golfmóti og Vestmannaeyjum og sumarbústað og öllu hinu, vel skipulagt já alveg uppá mínútu.  Jæja verð að þjóta.