Jú Nú er reglulega gaman að fylgjast með umræðuinni þar sem Enskir fjölmiðlar eftir mikið jabpl og jamm og fuður hafa úrskurðað Bresk íþróttalið Loosers of the world. og hefst nú upptalningin: Fótbolti,úr leik. Rugby úr leik, Tennis úr leik, eina vonin sem eftir er er langhlauparinn Paula Radcliff sem verður að reyna að hysja uppum þá brækurnar á Olympíuleikunum. Það hefur því verið grátið ómældum tárum á áhorfendabekkjum þar sem enskir rassar hafa vermt stólsetur og sólsetur árangurs hefur farið fram. VÁ þvílík setning. Ég náði því að gera allt vitlaust á skrifstofunni í gær áður en ég fór heim þegar ég sagði þeim að markið hefði verið dæmt af vegna ólöglegrar blokkeringar. Bang allt fór úr límingunum svo ég snéri mér bara við og fór í helgarfrí. Ég las hér í morgun í frægu slortímariti að rekstur konungsfjölskyldunnar kostaði sem nemur 2 mjólkurglösum á dag fyrir hvern Breta, hafði þetta komið fram í fréttatilkynningu frá konungshöllinni. Ja hvað skal segja. Þá er hér kominn af stað umræða um jeppamenningu Breta og vilja menn fara að skatta þetta sérstaklega. Við höfum nú búið við jeppamenningu til margra ára á Fróni og því skemmtilegt að sjá hverning Bresk stjórnvöld ætla að leggjast gegn þessari skjalatöskujeppamennsku sem nú tröllríður sérstaklega Lundúnarsvæðinu. Það svosem er mikið snjóléttarar hér á Enskum heiðum en á fjalldrapavöxnum heiðum Íslands, "Bröttumbrekkum" og "Almannaskörðum". En brátt líður að því að grasafræði íslenskra fjallvega heyrir sögunni til og fyrir vikið verði meiri kunátta meðal almennings um jarð og setlög vegna tíðra ferða um jarðgöng sérstaklega austanlands, Já austfirðingar eru nútíma hellisbúar á lúxusjeppum.
Bjöggi Adda-Bjarna
Dagbok Islendings um lifið og tilveruna og undarlegar ihuganir eða bara raus

<< Home