Fuglaflensa
Ekki hefur verið feitan gölt að flá hjá mér í haust og ekkert í spilunum sem bendir til að það eigi sérstaklega eftir að breytast. Mun þetta að öllum líkindum verða lélegasta haust síðan 1996 ef fer fram sem horfir. Ástandið er slíkt að ekkert verður til bjargar held ég úr þessu, til að snúa vörn í sókn og bæta úr því ófremdarástandi sem við mér blasir. Það sem er að er að ég hef síðan 1996 verið með fuglaflensu og þá aðallega gagnvart gæsum og svartfugli. Ég tel mig þó ekki á lokastigi því það eru þeir sem fara á gæs og fara á rjúpu. Ég fer hinsvegar í gæs. og þykir það mikið fínna. Ég hef ekki farið nema eina ferð í gæs þetta haustið og var það svo dapurt að ég skaut ekki skoti og meira segja fór aldrei í veiðigallann minn. Síðan hefur bara ekki verið um neina gæs að ræða á okkar veiðilendum og ástandið allt mjög undar- og óvenjulegt. Bændur segja að ýmist að gæsin sé kominn eða gæsin er farinn eða eða .... þetta er bara eins og baugsmálið enginn almennur borgari skilur í því frekar en háttarlagi fuglanna. Munurinn í Baugsmálinu er að gæsin þar er bara í betri holdum en þær sem ég eltist við. En málið er að ég er haldinn þessari fulgaflensu og hún er að herja á mig meira en áður þar sem ég hef ekki fengið notið þeirrar útivistar og þeirrar frumhvatarfullnæjingar sem veiðiskapur gefur þeim sem kann að meta og umgangast náttúru landsins. Ástandið getur bara batnað og það er ljósi punkturinn.
