föstudagur, október 27, 2006

Pólitískt fjölkvæni

Ekki veit ég hversu stór prósenta þjóðarinnar er í framboði um þessi misseri en það hlýtur að koma fram á skjálftamælum þegar þetta alþingiskosningarrodeo fer um sveitir landsins í atkvæðakappakstrinum mikla. Mér finnst aldrei hafa verið fleiri en nú sem ásælast það að komast á þing. Enda velborgað innistarf í boði þar sem líkamlegs atgerfis er ekki krafist og starfsöryggi er meira en gerist og gengur. Eftirlaunasamningar bærilegir og starfsumhverfið allt á Íslensku, áhyggjur af því að vera leystur af hólmi með erlendu vinnuafli óþarfar. Einhvern veginn hefur þetta þróast í þá átt að vera meira svona lýðræðislegt. Þá á ég við að flokksmenn geta kosið frambjóðendur í þau sæti sem þeir óska sér í prófkjörum. Uppstillingarnefndirnar, Sovésku, heyra sögunni til að mestu, og eina sem minnir á kommonistma eru elliærir Rauðflokkafélagar sem eru einskonar hjáróma dauðateygjur kaldastríðsins á Íslandi í þessum hleranafarsa sínum. Verst, afsakið ég meina að sjálfsögðu, best, er að það hverfur nánast í umræðunni um félagasstarf aldraðra í Hvalfirði. En víkjum að fyrirsögninni. Einhvernveginn virka sjálfstæðismenn í Reykjavík rosalega margir en ef rýnt er í allar þessar smámyndir af þeim í blöðunum sem styðja nú hinn og þennann, þá er þetta allt sama fólkið. Villi Borgó sker sig þó heldur úr því hann styður bara báða þá sem bjóða sig í fyrsta sætið í Reykjavik. Það er erfitt að vera sætasta stelpan á ballinu og verða elska þá báða svo maður noti þekkta sjálfstæðisflokks samlíkingu. Villi er því sekur um pólitískt fjölkvæni.

föstudagur, október 13, 2006

Nonni! Hættu þessu.........

Alveg er þetta týpískt. Ég hélt að ég hefði útkljáð þetta með Nonna Hannibalds. og hleranir. Hann bara skilur þetta ekki. Nú dregur hann fram fyrrum starfsmann Landsímans til að rökstyðja mál sitt og fá sínu fram. Blessaður maðurinn, þe. fyrrum starfsmaður Landsímans hefur verið negldur niður í stól með Lúxor gormalampa beindan í andlitið og þrumað á hann. "Spurt er; hefur síminn verið hleraður". Maðurinn, alinn upp í guðsótta og góðum siðum og getur því alls ekki, ömmubænar, sinnar vegna annað en sagt "já", og hefur svo örugglega bætt við ;, "en það vo........"; "Já vissi ég ekki, hann hefur verið hleraður" segir þá Nonni. Ég er svona fyrrum starfsmaður Landsímans þegar ég 14 ára gamall leysti af á símstöð norður í landi þegar afi minn símstöðvarstjórinn og hans frú brugðu sér í höfuðborgarferð. Ég hefði líka sagt "já síminn hefur verið hleraður". Og bætt síðan við það hafa allir símar verið hleraðir í gegnum tíðina. Hvernig átti fólk að fylgjast með í þá daga nema að lyfta tólinu af. Fólk vissi alltaf hvar mjólkurbíllinn var. Hvort kvígan á Hóli var sædd eða hvernig Jónsa litla í Hlíð gekk í háskólanum í Reykjavík. Það var ekkert pukur með hlutina; Eins manns koppur með allra annarra nefi ofan í. Svo auðvitað sagði maðurinn rétt og satt frá, ég hefði gert það líka...síminn hefur verið hleraður svo Nonni reyndu að jafna þig á þessu eins og við sveitalýðurinn sem deildum okkar lífum með sveitungum okkar.

þriðjudagur, október 10, 2006

Hleranir

Nú keppast menn við að gera sig merkilegri en þeir eru, með því að trúa því sjálfir að símar þeirra hafi verið hleraðir fram og til baka. Jón Baldvin hefur löngum verið nafli síns alheims og fattaði það nú þegar hann snéri heim úr starfshvíld sem sendiherra víða um heim að hann var næstum gleymdur enda kominn fram í Íslensku þjóðfélagi heil kynslóð nýrra manna sem eiga nóg af peningum og þörfin fyrir vestfirska alþýðuflokksrödd ekki eins sterk og áður. Það er laangur gaangur þar frá. Það sem ég sé spaugilegt við þetta er að þegar téður krati heldur því fram að síminn sinn hafi verið hleraður var heimlið þeirra fullt af unglingum með Röskvu hugsjónir og því hefur hann vart geta komist oft í símann sjálfur annað hvort fyrir mali unglinganna eða fyrir Bryndísi sem hefur verið að skipuleggja Stundina okkar með Þórði Húsverði. "Íslenska leyniþjónustan" hefur því yfir að ráða fleiri spólum af slangri og byltingartali Glúms og Kolfinnu eða undirpilsbröndurum Þórðar Húsvarðar en símtölum sjálfs Hr. Ráðherra sem varðað gæti þjóðaröryggi eða frelsun Litháen. Annars verð ég að koma því að, að Ísland verður hertekið aftur eftir tvo daga þegar Nato herskip kemur til landsins og hleypir til um það bil 1200 sjóliðum í fjóra daga. Þetta finnst mér alveg frábært því Stefán andstæðingur og Birna Þórðar sem stympast hefur með fleiri hermönnum á Miðnesheiðinni en margar aðrar, þó beinar séu, eru enn að halda uppá brotthvarfið í tvær vikur nú. Hvað varðar sjóliðana þá áttu þeir greyin að fá að taka 4 daga leyfið sitt á Ítalíu en enduðu svo á Íslandi.........live sucks

sunnudagur, október 08, 2006

Ísland lögsækjum það heim

Ísland er land tækifæranna á fjögurra ára fresti. Ekkert mál að koma hlutum í gegn á fjögurra ára fresti og á fjögurra ára fresti kemur fólk fram og ljóstrar því upp hversu miklir hálfvitar og liðleskjur þeir séu sem hafa farið með stjórnina síðastliðin fjögur ár. Og þetta fólk hefur flest allt verið sitjandi á þingsætum síðastliðinn 4 ár einnig. Afsakið þetta er ekki alveg rétt hjá mér, þeir eru alltaf hljóðir allir sem einn og sammála, þegar nefndir skipaðar af þeim sjálfum ályktar og skipar svo fyrir að launin þeirra skuli hækka svo og svo mikið eins og um daginn. Ekki eitt andmæli hef ég heyrt um það. Ég hef nú ekki bloggað síðan í júní og þykir mörgum nóg um hversu langt sumarfrí ég hef tekið mér. Ég hef má segja verið hálf orðlaus síðan í sumar þegar við "sóttum Ísland heim" familíjan. Við fórum um verslunarmannahelgina í vagninn okkar norður í land á mínar heimaslóðir, svona til að tengja afkomendur mína við þúfurnar sem ég hrasaði um í æsku. Þarna var maður svo rændur í bókstaflegri merkingu þegar manni var gert að greiða 6000 kr fyrir 4 hamborgara og kók, mistökin mín voru náttúrulega að athuga ekki hvað þeir kostuðu þegar ég pantaði en maður gerir sér svona óljósa grein fyrir að allt yfir 4000 hefði verið farið að hringja rauðum svívirðingar bjöllum. Ég talaði ekki meira þennann daginn segir konan mín og ég hef haldið aftur af mér síðan um Verslunarmannahelgina með að blogga um þetta. En ég nota núna áfallahjálpsaðferðina og tjái mig því um þetta nú til að létta þessu af mér og vona að ég fái sálarró. Ég hugsa til þess þegar afi minn og amma bjuggu á þessum sama bæ og hefðu rukkað gesti og gangandi fyrir jafnómerkilegan gjörning og þennan þá væru þau forrík.....Þetta slagorð ferðaþjónustunar er því með stórkostlegri prentvillu því þarna á að sjálfsögðu að standa, "Ísland lögsækjum það heim".