fimmtudagur, júní 29, 2006

Dönsku Alparnir

Fríið var gott og viðgjörningur bæði Danskur og Íslenskur góður í alla staði. Landið fagurt og gróið og innfæddir lúnknir í sínu móðurmáli en ekki eins frambærilegir á enska tungu, þarna voru krakkar alveg niður i kornabörn sem töluðu dönsku lítalaust reiprennandi. Ekki sáum við helsta kennileiti Jótlands, Himmelbjerget, fyrir trjám en það var þarna á landakrotinu á vinstri hönd norður og hægri suður. Málheltið var helsti annmarki ferðarinnar og við áttum frekar erfitt með að sætta okkur við að geta ekki spjallað við Danina, okkur þykir gott og gaman að tala. Ég stóð, upphugsaði og setti saman í huga mér heilu ræðurnar og samtölin við fólk, opnaði síðan munninn og út úr mér kom þá: "Har du lavet kaffe"? og þetta var sem sagt það sem maður afrekaði fyrir hádegi þann daginn og síðan var löng þögn á meðan íslenskir stafir röðuðu sér í danskar setningar fyrir síðdegissetninguna. Ég mátti þakka fyrir að verða ekki hepptur í fangelsi þarna á Jótlandinu og sendur á Borgundarhólm í Íslendingafangelsið þegar ég hugðist borga brauð og corn fleks með creditkorti mínu í danskri 11/11 búllu. Danir eru ekki eins framfarasinnaðir og við yfirspenntu Íslendingar sem veifum kennitölum okkar og kortum um allar tryssur. Kassadaman hefði alveg eins getað verið að afgreiða Marsbúa því hennar local Danska líktis meira Finnsku fyrir mér og Danskan mín hefur hljómað fyrir henni eins og bænagjörð við grátmúrinn. Ég svissaði eldsnöggt yfir í ensku og ætlaði að sigla uppúr þessum túngumálaörðuleikadal. Gengt hvoru öðru stóðum við þarna. Ég, Dirty Harry, með íslenskt kreditkort í hendi og hún á svipinn eins og Sheriff í villta vestrinu sem hleypir ekki svona íllþýði inní sinn bæ. Málið leystist með fingramáli og hvalahljóðasendingum og ég slapp útí banka til að leysa út af kortinu danska ríkisdali, mér var ekki skemmt þegar ég skoðaði seðlana sem ældust út úr hraðbankanum með mynd af Þórhildi Íslending á. Hvað halda þeir eiginlega að þeir séu..........