miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Ný vindmæling "pilsafeykir"

Aðeins hefur haustkrafturinn verið að minna á sig í vikunni og um síðustu helgi með vindbelgingi. Og hefur ýmsum nafngiftum verið fleygt um þetta athæfi. Það kemur berlega í ljós að fólk hefur alist upp við ýmsar breytilegar lýsingarsagnir þegar kemur að því að lýsa vindi, sumar eru ærið fyndnar og nauðsynlegt að halda þeim við svo eigi glatist. En það er fleira með vindinn og það reyndi ég í dag þegar eg beið á ljósum við nálægt bílastæði þar sem huggleg kona að bjástra með tvö börn á óþekkum aldri ( jú þetta á að vera á óþekkum ekki óþekktum aldri), sem ekki vildu hlýða skipunum móður sinnar. Konan var mjög hugguleg til fara í mittis gallajakka og með sólgleraugu og tískuklippinu sem fólst í því að hárlubbi hennar var tekinn uppí hnút og rekin í gegn með prjónum og spennum og þess háttar stuðningsbúnaði. Á öxl sér var hún með handtösku líklega frá GUCCI geri ég ráð fyrir allavega hlýtur hún að hafa verið dýr því passað var uppá að hún færi ekki af öxlinni og í jörðina í uppeldisstríðsdansinum sem hún steig að miklum móð þarna á bílastæðinu. Að neðan var konan í þunnu sumarpilsi. Það er því sem við manninn mælt að til að bæta ekki ástandið var hnjúkaþeyr góður á bílastæðinu og vandaði það um fyrir hinni huggulegu konu með töskuna, sólgleraugun,tískuklippinguna já og börnin tvö á óþekkum aldri. Pils konunar gat með engu móti hangið niður við þessi veðurskilyrði og stóð meira utan á henni eins og öfugt spennt regnhlíf og gaf öðrum vegfarendum góða lýsingu á því hver vindáttin var og styrkur. Veðrið kl: 18 Þarna var sem sagt austnorðaustan pilsafeykir góður. Ég fann orðið til með huggulegu konunni með töskuna, sólgleraugun, tískuklippinguna já og börnin tvö á óþekkum aldri og stóð sjálfan mig að því að hafa horft þarna á atganginn í einhverja stund, ekki lengi, en einhverja stund. Ég var því fegnastur þegar bílaröðin mjakaðist af stað og ég með. Eftir á að hyggja hefði það bara verið meira vandræðalegt hefði ég farið og boðist til að halda niðrum hana pilsinu eða leiða fyrir hana börnin, þetta er jú lítil borg og allir þekkjast einhversstaðar.

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Þrælaeyjan

Það virðist orðið staðreynd að við Íslendingar höfum lagt fyrir okkur fornsiði þeirra er hér hófu strandhögg, forðum tíð. Útlendingar standa agndofa yfir þeirri óútskýrðu kaupgetu Íslenskra businessmanna sem hriktir til fornar ættir einokunarkaupmanna. Hvert óhagganlegt stórveldið hefur verið lagt að velli og Jón Ásgeir Hárfagri hefur farið mikinn um hin og þessi skíri engilsaxnesk og nú síðast dönsk og hefur því lagt lóð á vogarskálar þeirra sem ekki hafa en fyrirgefið Dönum vald og níðslu fyrri ára og alda. Þeyjandi þörfin hefur því verið reist á rönd og nær að taka auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Tekið skal á nágrannaþjóðum okkar með fjárfestingarfantabrögðum og þeir sniðglímdir til jarðar á lofti sem og legi en þar fara fremstar skipaútgerðir Íslenskar og hefur Íslenskum fána verið flaggað á mörgum möstrum þeirra fleya sem þversigla Ermasund og nágranna siglingaleiðir. En þessi útrás hefur alltaf tekið toll og fólk er flutt til viljugt eða nauðugt og svo er eins á 21, tækniöldinni sem og fyrri öldum. Íslendingum er ennþá tamt til minnis þegar Tyrkir komu og fóru um lendur okkar drepandi og rænandi, Þarna voru Tyrkir teknir fyrir Alsíringa. Slíkt hendir að menn séu hafðir fyrir rangri sök. Nú verða sögur æalgengari og háværarri að íslenskir athafnamenn stundi þælahald hvort sem það er við virkjun, byggingariðnaðinn, bátasmíði eða bara afgreislu í sjoppu. Allir eiga þeir sammerkt, athafna-mennirnir og kona, að þykjast ekki hafa hugmynd um hver kjör eigi að vera hjá óvörðum og ótalani verkalýðnum, og þau hafa semsagt verið bara svona einstaklega heppin þegar þeir sjálfir gerðu kjarasamning við sjálfa sig að hitta á taxta sem þau sjálf gátu sætt sig við. skrítið ekki satt, eitt af undrum heimsins.!

mánudagur, ágúst 08, 2005

Elsku besti tollurinn

J+uh+uuuuuuú.... Loksins hefur verið samþykkt af yfirvöldum landsins að tjaldvagn fjölskyldunnar verði leyft að flytjast til landsins. Það tók tollayfirvöld og umferðarstofu góðar tvær vikur að komast að þessari niðurstöðu. Við höfum því náð því að fara í vagninn og gista tvær nætur í honum um síðustu helgi. Alveg gríðarlega notalegt og þar að auki tók ekki nema um 45 mín að tjalda fortjaldinu í þetta skiptið svo heimur batnandi fer. Okkur var sagt að grunnur að mörgum hjónskilnuðum væri lagður þegar hjón væru að tjalda þessum fortjöldum. En samrýmd erum við svo ekkert fær okkur haggað eða þannig. Maður gleðst yfir þeirri staðreynd að allir komu aftur til baka úr verslunnarmannahelgarferðum sínum og er það nýtt met. Árni hnefaréttur sá til að allt færi fram eftir hans eigin reglum í Vestmannaeyjum, og sér yngri menn væri ekki með valdtroðning yfir hans yfirráðasvæði. Það er bara einn kóngur. Þetta verður bara stutt núna