mánudagur, apríl 25, 2005

Horft til Norðurs

Það líður hratt tíminn og virðist það gerast jafnt um allann heim. Alla vega er tími okkar hér í Englandi senn á enda og hefur verið okkur gagnlegur og skemmtilegur, en umfram allt lærdómsríkur. Við urðum því að skella okkur heim til Íslands um páskana og leita uppi íbúð til að hafa nú í einhver hús að venda þegar að þessu kæmi. Forledrar mínir voru svo fyrirhyggusöm þegar þau voru búinn að fá okkur systkinin öll heim einu sinni aftur af mismunandi ástæðum að þau létu taka úr húsi sínu auka herbergið svo ekki væri hægt að gista þar. Mjög kurteisislegt hjá þeim. Nei bara grín. Við sem sagt höfum fest okkur hreiður í Grafarvogi. Og þar höfum við hug á að setja okkur niður. Íbúðin er nú í endurgerð ss. málun og gólflögnum og slíku og vonandi verður þetta allt komið saman þegar að innflutningi kemur. En þetta eru minni háttar vandamál og snúum okkur að gagnlegri umræðu. Þeir hafa komið sér saman um nýjan hvítreyktan Páfa Og af markaðsástæðum höfðu þeir hann lítið eitt eldri núna en síðast. Þannig er tryggt að styttra verður á milli víxluathafnanna. Ég hef svo sem ekki nokkra skoðun á þessu Páfastússi og er ekki sérlega kirkjurækinn maður.Æji nú verð ég bara að skera pistilinn þar sem ég er að fara til Brussel og er verið að sækja mig núna.

föstudagur, apríl 15, 2005

Endurkoma pistlahöfundar

Nú hef ég ekki skrifað lengi og skömmin er mín. “Pardon me”. Ástæðan er svosem ekki að ekkert markvert hafi gerst hér til að velta sér uppúr, síður en svo það hefur heilmikið gerst. Ég og mín spússa og bura höfum verið á heilmiklum þvælingi uppá síðkastið og því hafa mikilvæg og nákvæmisstörf eins og pistlagerð verið sett til hliðar undanfarið. En látum okkur sjá, Karl og Kamilla hafa loksins gengið til náða löglega. Þannig, það verður ekkert gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni þar sem ástarleikir þeirra verða núna eftir settum reglum á ákveðnum tímum og dögum. Ég sé þessa athöfn þeirra falla inní stundaská þeirra niðurneglt. Klukkan 20:55 á Þriðjudögum verður gengið til herbergis. Meira að segja blessaður Páfinn var að reyna að veikum mætti að mótmæla þessu undir lokinn en sökum raddleysis þá var lítið eftir til að vekja á sér athygli en að leggjast til hinstu hvílu og allavega setja úr skorðum þannig brúðkaupsdaginn eða skal ég frekar segja dag landgræðslunnar. Hattur hinnar nýgiftu konu var örugglega styrktur af melgresisnefnd, og ef heildarmynd Camillu er skoðuð þarna á þessum degi þá minnti hún mig mest á eina af sandöldunum fyrir utan Þorlákshöfn, allt frekar grátt og efst trjónir megresis þúfa sem á sér enga ósk heitari en að komast í frjóari jarðveg þar sem lífsbaráttan er ekki jafn hörð. Kalli er elsti krakki í heimi. Harðneitað að kyssa kellu fyrir framan allt liðið og fór svo bara með hana í útilegu til Scotlands. Þetta er sko húsbóndi á sínu heimili. Annars er það helst að frétta hér að útiverk standa sem hæst og garður hefur loksins verið sleginn og stendur til að klippa runna og limgerði. Veðrið hefur verið með þokkalegasta móti hér síðustu daga en vantar svona herslumunin á að vorið sé allveg búið að stimpla sig inn. Ég mun reyna að lofa bót og betrun og fara að skrifa tíðar en framundan eru mikil ferðalög og annasamir tímar þar sem flutningar til Íslands standa fyrir dyrum.