Átak er átakanlegt
Megrun og átak er sennilega mest notaða orðið hjá Bresku þjóðinni þessa dagana þar sem allir hafa áhyggjur af syndum sínum yfir jólin. Þetta sést vel í sjónvarpinu sem hefur yfirfulla auglýsingatíma af annars vegar allkyns megrunarkúrum og átökum og hinsvegar skyndibitafæði og mæjonies framleiðendur sem reyna að sporna við árlegu tekjutapi í Janúar og Febrúar. Við reynsluboltanir vitum hins vegar að 90% svona átaka fellur um sjálft sig á fyrstu tveimur mánuðunum. Við erum samt í þeim hópi sem ætlar að taka af sér jólakílóin. Skápar og skúffur eru full af special K, létt þetta og létt hitt, hrökkbrauði og vatni. Allt svaka fínt. Til að mæla árangur verkefnisins var ráðist í að fjárfesta í nýrri baðvog í dag. Ég fór á stúfana og henti gömlu baðvoginni í ruslið eftir að greyið hafði ekkert svo sem sér til saka unnið annað en að gefa okkur rangar upplýsingar um stöðuna á þyngd hvers og eins. Blessuð viktin hafði af kurteisi og vorkunnsemi sennilega við okkur bara farið að sýna of lítið og þar með byggt upp hjá okkur falsvon um ástand okkar og spengilegheit. Verðlaun heimsins eru vanþakklæti og svo var einnig með viktina því henni var umsvifalaust vikið úr starfi yfirþyngdarskrásetjari heimilisins og komið fyrir í ruslatunnu heimilsins. Í dag var svo kynnt fyrir vistmönnum Vindbelgs ný og afar fullkominn þyngdarmælingartæki sem ég sótti til Grimsby. Tækið er af Hanson gerð og talar þrjú tungumál og man mælingar hvers heimilsmanns fyrir sig og getur þvi skammað mann eða hrósað eftir því hvernig manni verður ágengt. Að sjálfssögðu er einnig á henni gluggi til aflestrar og hún segir manni til bæði í kg og stónum. Þá er stillingar fyrir kurteisi þe. hún getur hvíslað að þér hvað þú er þungur, hrópað það eða hreinlega þagað yfir því sem er líklega best. Við vorum ægilega hrifinn með tækið að vísu kom hreinskilni þess okkur dálítið í opna skjöldu en við sannleikann er best að lifa og oft stígur þungur fast til jarðar eins og Bibba sagði. Við vorum að dást að tækinu og fannst samt að það væri enginn þörf á að hafa tal á henni. En eftir að hafa stigið líkþornuðum fótum á hvíta plötuna sáum við að þessi tungumálakunnátta tækisins er hreinlega nauðsynlegt þeim sem ekki sæju á gluggann bæði vegna sjóndepru að einhverju tægi og einnig vegna bumbunar sem blokkeraði sjónlínua á sjáinn. Nú er bara sjá hvort og hvenær þessi brotnar niður og fer að sýna okkur falskar tölur af vorkunsemi einni saman.
