Sumarfrí
ÉG væri nú helvítis lygari ef að ég mynd reyna að segja ykkur að ég þrái orðið að komast í frí. Og þetta eru langir klukkutímar að líða núna þangað til að síðasta vinnudeginum er lokið. Við erum því að leggjast í pökkun á fatnaði í kvöld. Við fylgdumst með Þjóðhátíðinni héðan frá UK svona með lestri frétta á netinu. Og síðan var notalegt í gær þar sem Ísland var í fríi og ekki eitt símtal frá þeim allann daginn. Bróðir minn var hér um daginn eins og áður sagði og fór heim með þeim orðum að þeir (feðganir allir) myndu leggjast í golf æfingabúðir til að vera undirbúnir þegar ég kæmi til Íslands og þar yrði ég svo malaður í þessum skoskættaða höggleik. Einhver undrun og ljóstrun hefur skotið sér niður í mig þar sem höggafjölda mínum í þessum leik hefur fækkað til stórmuna og ekki er það neitt sérstaklega að ég hafi breytt neinu hjá mér, svo að á meðan ég veit ekki hvað ég hef gert rétt til bæta leikinn þá er best að hugsa ekki frekar útí það njóta þess á meðan það er. Er þetta ekki týpísk lýsing karlmanni? Hvað????? Næsti blogg pistill verður öruggglega gerður frá Íslandi.
