Hér geysar þjóðarsorg eftir leik Portugala og Enskra addáenda, En það var samt Svissneska dómaranum sem á ensku er jafnan nefndur "The bastard in black" að kenna að þeir komust ekki áfram, það er ekki minnst orði á að gulllöppin Beckham og hinn þarna klúðruðu vítumspyrnum sínum af stakri snilld. Á skrifstofunni gengur veðmál sem virkar þannig að manni var dregið lið og borgaði 2 pund fyrir. Svo er að sjá hvað þetta lið manns kemst langt, ég fékk Holland sem ég átti ekki sérstaklega von á að færi mjög langt og er það komið lengra en búist var við. Bretar eru sem sagt með skerta starfsorku og felst það í því að þeir þurfa að fara snemma heim eða á pubbinn til að horfa á leikinn og síðan eru þeir með timburmenn daginn eftir. Það var því þjóðhagslega hagkvæmt að þeir féllu úr leik í gær svo hægt væri að ná fyrirtækjum á skrið á ný. Ég átti nú helvíti bágt með mig um daginn þegar ég las á MBL að Bush var að agnúast út fáeinar hvalrengjar sem smábátar á Íslandi væru með herkjum að reyta upp við Íslandsstrendur, Veit hann ekki að hann stútar tugum manna á dag með þessu brölti sínu þarna suðurfrá. Æji hún þvælist nú ekkert fyrir honum Bush mannvitsbrekkan. Það eru ekki til nógu sterk orð til að lýsa Ameríkönum. Við vorum með 17 júní hátíðarhöld, ísköld, þann tuttugasta og hvernig getur maður lýst með orðum þeirri tilfinningu að rennandiblaut pylsubrauð lekur niður handarbakið á þér þegar bítur í endann á pylsunni rigningarþynnt brúnt SS pylsusinnepið spýtist uppá nef og gleraugu. Það er ekkert sem slær svo Íslenska stemmingu út. Athugðið að það er einungis 1 dagur þanngað til að við fáum að vita hvort það verður Arabísk, Rússnesk eða Bresk forsetafrú sem fyllir Bessastaði með húsmóðurlegu andrúmslofti næstu 4 árin, þó líta þær ekki út eins og húsmæður í mínum augum. Kveðja frá Healing þar sem ábúendur voru of uppteknir til utankjörstaðarkosninga og geta því ekki sett mark sitt á val húsmóðurinnar.
Bjöggi Adda-Bjarna
Dagbok Islendings um lifið og tilveruna og undarlegar ihuganir eða bara raus
föstudagur, júní 25, 2004
föstudagur, júní 18, 2004
Ég er nú löngu búinn að jafna mig á landsleiknum okkar þarna um daginn og segi eins og í Laxdælu "Var hann svo drepinn og er þar með úr sögunni". Skarp glöggir menn þarna á söguöld að vera ekkert að púkka uppá eða draga aftur inní söguna þá er þegar höfðu verið drepnir, það hefur þótt bruðl á kálfskinni. Veðrið hefur verið allveg brill undanfarna daga og í dag er rigning sem er gott. Hefði átt að vera í gær þar sem 17 Júní var þá. Við ætlum hinsvegar að taka hann á Sunnudaginn og þar verður sproðrennt heilum fjöllum af SS pylsum (pulsum fyrir Sunnlendinga. Á morgun verður farið í dýragarð með gestina já já við munum taka þau með okkur aftur heim, engar áhyggjur. Við hjónin fórum í helgar slaufuferð til Kaupmannahafnar um síðustu helgi og skoðuðum fíkniefnaneytendur í Kristaníu sem og Íslendingaslóðir bæði fornar og nýjar, því meðal annars heilsuðum við uppá Sæla smið frá Eyjum sem endurbyggir hús þar í gríð og erg. Við gengum þarna upp og niður strikið og vorum í svona léttvínsmareneringu allann tímann enda barnlaus og nutum lífsins. Þá var ég dreginn í Tívolí í stóra rússibanann og það er þvílíkt adrenalínkick sem ég hef fengið, meira að segja meira heldur en að vera í bíl með Kristleifi forðum daga og þótti það nú vera toppurinn. Kaupmannahöfn er góður bær að heimsækja og létt andrúmsloft þar. Bretar hvorki sofa eða nærast nú á meðan þessi evrópukeppni fer fram, annars mætti umorða þetta á þann hátt að segja að það fari fram evrópukeppni í bjórkeppum á pöllunum þarna suður frá. Þegar haf nokkrir verið sendir heim þar sem þeir þoldu ekki álagið og hnefar þeirra hrösuðu um andlit annarra bjórkeppa.
sunnudagur, júní 06, 2004
Við fórum í einhverja furðulegustu ferð sem ég veit um í gær þegar við sáum England niðurlægja Ísland í Manchester. Sko dagurinn var góður og skipulagning ferðarinnar frábær, en átti ég heiðurinn að því, huhuhummmm. En leikurinn sjálfur, Guð minn góður. KSI og þjálfarar íslenska liðsins ættu að biðjast opinberlega fyrirgefningar á að hafa búið til þessa umgjörð sem fékk 3000 kaupendur að miðum á Íslandi til að leggja út ómældar upphæðir í ferðalög og uppihald í UK. Nei KSI væri nær að auglýsa bara og selja verslunarferðir þar sem því væri lofað að fólk myndi ekki sjá Íslenska karlalandsliðið keppa. Eina manneskjan sem virkilega stóð sig á vellinum í gær var Diddú þegar hún gargaði þjóðsönginn yfir 48000 manns. Það er til skammar að hafa hrienlega boðið okkur og Englendingum uppá þessa skömm. Menn eiga ekki að stofna til slíkra ferða þegar það er löngu ákveðið að ekki megi koma við þessar Ensku pissudúkkur sem hver um sig kostar eins og ein Vestmannaeyjaferja. Nei skömm á KSI forustuna og Þjálfarana. Þar fyrir utan að gera leikmönnum okkar þetta að senda þá útí algjöra niðurlægingu, með dagskipunina að ekki megi koma við þá ensku vegna evrópukeppninnar sem hefst í næstu viku. Eitthvað hefur þessi keppnin kostað KSI og ljóst að það skilaði engu.
